
03 Jan Barna og unglingastarf hefst í næstu viku
5-6 janúar hefst á ný vinsæla barna og unglingastarfið í hnefaleikum og brasilísku jiu jitsu.
.
Barnabox 8 – 11 ára
Farið er í gegnum grunnatriðin í Ólympískir hnefaleikum á hraða hvers og eins.
Á námskeiðinu er lagt upp á hópefli í gegnum leiki og að hver og einn njóti sín í tímanum.
Styrkur, sjálfsöryggi, vitund, virðing, agi og ábyrgð eru algeng gildi sem krakkarnir læra í gegnum hnefaleikaíþróttina. Góð leið til að komast í betra form, eignast vini og hafa gaman.
.
Unglingabox 11 – 16 ára
Farið er í gegnum grunnatriðin í Ólympískum hnefaleikum. Dagskráin er byggð upp til að kenna tækni sem miðast við getu, lipurð og sveigjanleika einstaklingsins í skemmtilegu, vingjarnlegu og gagnvirku umhverfi. Góð leið til að komast í betra form, eignast vini og hafa gaman.
.
Unglingatímar í BJJ 10-16 ára
Við hjá VBC trúum að Brasilískt Jiu-Jitsu stuðli að heilbrigðum, persónulegum vöxt og byggi upp karekter.
Styrkur, sjálfsöryggi, vitund, virðing, agi og ábyrgð eru algeng gildi sem krakkar læra í Brasilísku Jiu Jitsu. Dagskráin er byggð upp til að kenna tækni sem miðast við getu, lipurð og sveigjanleika einstaklingsins í skemmtilegu, vingjarnlegu og gagnvirku umhverfi. Einng er þetta góð leið til að komast í gott form, eignast vini og hafa gaman.
Stundatafla og verðskrá.
Unglingahópur í Brasilísku Jiu-Jitsu 10 – 16 ára
Kennt er mánudaga og miðvikudaga 16.30 – 17.30
Vorönn eru 5 mánuðir og kostar 35.000.- fyrir heila önn.
Þeir unglingar sem æfa báðar íþróttir greiða 1900.- aukalega eða 9500.- fyrir önnina.
.
Hnefaleikahóparnir eru skiptir eftir aldri
8 – 11 ára kennt er þriðjudaga og fimmtudaga 16.15 – 17.00
12 – 16 ára kennt er þriðjudaga og fimmtudaga 17.00 – 18.00
Vorönn eru 5 mánuðir og kostar 35.000.- fyrir heila önn.
Þeir unglingar sem æfa báðar íþróttir greiða 1900.- aukalega eða 9500.- fyrir önnina.
Skráning fer fram í gegnum vbc@vbc.is og í síma 537-1101
Sorry, the comment form is closed at this time.