top of page

Porto Box Cup, stærsta hnefaleikamót í heimi

  • gumminn
  • Apr 19
  • 1 min read

Stærsta hnefaleikamótí heimi var haldið 25. - 28. mars í Portúgal. Alls voru fjórtán íslenskir keppendur á mótinu, níu frá HFK og 5 frá HR.


Á mótinu voru 950 keppendur og barist í 7 hringjum samtímis alla helgina.


Úrslit HFK voru eftirfarandi:

  • Fajer Ghazali keppti sinn annan bardaga á móti Breta og stóð sig vel en tapaði naumlega 2-1.

  • Viktor Víkingur keppti á móti Spánverja og tapaði á klofinni dómaraákvörðun

  • Arnar Jaki keppti við Spánverja og tapaði með klofinni dómaraákvörðun

  • Kormakur Steinn keppti á móti sterkum Pólverja en tapaði á dómaraákvörðun

  • Hlynur Þorri sigraði Svía 3-0 í undanúrslitum en tapaði á móti Sviss í úrslitum og fékk silfur 🥈

  • Arnar Gauti keppti á mót brons verðlaunahafa á EM og tvöföldum Spánarmeistara. Arnar var með mikla yfirburði í bardaganum en fékk blóðnasir og dómarinn stöðvaði bardagann.

  • Yahya Ghazali keppti við sterkan Svía og átti mjög góða frammistöðu en tapaði að lokum á dómaraákvörðun.

  • Zalmai Jasur keppti á móti öflugum Spánverja. Zalmai var yfir hjá dómurum þegar 20 sek voru eftir í þriðju lotu en þá labbaði Zalmai inn í skrokkshögg og náði ekki að jafna sig.

  • Ísak Guðnason keppti á móti Portúgalska meistaranum. Ísak átti mjög góða frammistöðu, dómararnir voru hliðhollir Portúgalanum þrátt fyrir virkilega sannfærandi frammistöðu og höfðu margir hlutlausir áhorfendur tal á því að þarna hefði verið skrítinn dómur á ferð.



 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page