
13 Apr Skráning á byrjenda og grunnnámskeið í maí
Ný grunnámskeið hefjast í maí.
Muay Thai – Hnefaleikar – Brasilískt Jiu Jitsu.
VBC MMA er vaxandi íþróttafélag með frábæra þjálfara sem hafa bæði mikla reynslu af þjálfun og keppnum erlendis og innanlands. Aðstaðan er 970 fm að stærð og er útbúin góðri setustofu, fullgildum boxhring, stóru glímusvæði, stórum speglasal, púðasvæði, wrestling/mma svæði ásamt góðri lyftingaraðstöðu.
Muay Thai Grunnur – 4 vikna grunnnámskeið
Hefst 2 maí .
Námskeiðið eru 4 vikur og er undirbúningur fyrir almenna Muay Thai tíma, farið er ítarlega í undirstöðuatriðin í þessari frábæru bardagaíþrótt sem er þjóðaríþrótt Tælendinga. Kennt þriðjudaga og fimmtudaga 20.00 – 21.00
Verð 14,500,- Skráning fer fram hér. Nánari upplýsingar vbc@vbc.is og í síma 5371101
Box Byrjendur
Hægt að byrja hvenær sem er.
Námskeiðið er 8 vikur. Á þessu námskeiði er farið ítarlega í undirstöðuatriðin í Ólympískum hnefaleikum á hraða hvers og eins, frábær leið til að læra þessa göfugu bardagaíþrótt og komast í flott form í leiðinni. Kennt mánudaga og miðvikudaga 18.00 – 19.00
Verð 23.900.- Skráning fer fram hér. Nánari upplýsingar vbc@vbc.is og í síma 5371101
BJJ Byrjendur
Hægt er að byrja hvenær sem er.
Námskeiðið er 8 vikur, námskeiðið er kennt NoGi (venjuleg íþróttaföt)
Brasilískt Jiu-Jitsu er gólfglíma sem er byggð á þeirri hugmynd að veikari einstaklingur geti varið sig gegn stærri og sterkari andstæðing með því að nota vogarafl og góða tækni. Það hentar því fólki af öllum stærðum og gerðum. Markmiðið er að ná yfirburðarstöðu gagnvart andstæðingnum nota lása og hengingar til þess að fá hann til að gefast upp. Kennt mánudaga og miðvikudaga 20:00 – 21:00
Verð 23.900.- Skráning fer fram hér. Nánari upplýsingar vbc@vbc.is og í síma 5371101
Sorry, the comment form is closed at this time.