top of page

Íslandsmeistaramót No-Gi 2025

  • Writer: VBC
    VBC
  • May 27
  • 3 min read

Þann 24. maí síðastliðinn fór fram Íslandsmeistaramót No-Gi 2025 í Ármannsheimilinu.


Margir keppendur tóku þátt fyrir hönd VBC og við óskum þeim kærlega til hamingju fyrir virkilega góðan árangur og glæsilegar frammistöður.

Allt í allt höfum við 8 Íslandsmeistara frá VBC í ár og við óskum þeim innilega til hamingju.


Mikil vinna hefur verið lögð í að fá allar þessar bætingar fram og allur hópurinn á stórt hrós skilið fyrir að standa þétt við bakið á hvort öðru með það að markmiði að bæta hvort annað.

Bæði var keppt í flokki barna og ungmenna, og í flokki fullorðinna.


Í flokki fullorðinna kepptu fjölmargir frá VBC og mörg verðlaun skilurðu sér í klúbbinn.


Í flokknum KARLAR / WHITE / -76 KG (LIGHT) kepptu þeir Gummi GÍslason sem tók silfur í flokknum og hann Atli Þór Júlíusson sem tók brons.


Í flokknum KARLAR / WHITE / -83 KG (MIDDLE) keppti hann Simone De Palka undir okkar merkjum og tók silfur í sínum flokk. Einar Már Sonjuson keppti einnig fyrir VBC í sama flokk en lenti ekki á palli í þetta sinn.


Í flokknum KARLAR / BLUE / -76 KG (LIGHT) keppti Þröstur Njálsson fyrir VBC og tók vel verðskuldað brons.


Í flokknum KARLAR / BLUE / - 83 KG (MIDDLE) keppti Hilmir Dan Gíslason fyrir VBC en lenti ekki á palli í þetta sinn.


Í flokknum KONUR / WHITE / -60 KG (FEATHER) keppti Margarida Rocha fyrir hönd VBC og hreppti brons.


Í flokknum KONUR / WHITE / -70 KG (MIDDLE) kepptu báðar Weronika Skawinska sem hreppti gull og er því nýr Íslandsmeistari í sinum flokk, hún Vigdís Helgadóttir keppti einnig í sama flokk og tók silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum KONUR / BLUE / -55 (LIGHT FEATHER) keppti Halla Björg Ólafsdóttir og hreppti hún silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum KONUR / BLUE / -70 (Middle) kepptu báðar Kolka Hjaltadóttir sem hlaut gull og er því Íslandsmeistari í sínum flokki og Sigurdís Helgadóttir sem tók silfur.


Næst skulum við snúa okkur að Íslandsmóti Barna og Unglinga:


Í flokknum STELPUR / 6 - 7 ÁRA) - 25 KG vann Dalrós Eiðsdóttir gull og er því nýr Íslandsmeistari í sínum flokk.

Laufey Líf Þrastardóttir keppti einnig í sama flokk og tók silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum STELPUR / 8 - 9 ára) - 35 kg hlaut Maren Sól Pálsdóttir silfur, Natalie Brim Guðmundsdóttir tók brons og Arndís Anna Hallgrímsdóttir keppti í sama flokki en lenti ekki á palli í þetta sinn.


Í flokknum STELPUR / (10 - 11 ára) - 30 kg hreppti Dimmey Líf Oddsdóttir silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum STELPUR / (11 - 12 ára) - 55 kg hreppti Camilla Rós Árnadóttir silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum STELPUR / (12 - 13 ára) + 60 kg hreppti Lilja Dögg silfur fyrir hönd VBC.


Í flokknum STRÁKAR / (4 - 5  ára) - 20 kg hrepptu Axel Ikem Vestmar Maduako silfur og Karol Kobielski brons fyrir hönd VBC.


Í flokknum STRÁKAR / (6 - 7 ára) - 20 kg tók Haukur Kristinsson gull og er því nýr Íslandsmeistari í sínum flokk.


Í flokknum STRÁKAR / (6 - 7 ára) - 25 kg kepptu þeira Nói Brim Guðmundsson og Óðinn Logi Oddsson fyrir hönd VBC en náðu ekki á pall í þetta sinn.


Í flokknum STRÁKAR / (6 - 7 ára) - 30 kg tók Kristó Karel Árnson gull og er því nýr Íslandsmeistari í sínum flokk.


Í flokknum STRÁKAR / (8 - 9 ára) - 30 kg tók Vikingur Manuel Elíasson silfur fyrir hönd VBC, Ísar Þór Helguson keppti einnig í sama flokk en náði ekki á palli í þetta sinn.


Í flokknum STRÁKAR (10 - 11 ára) - 45 kg tók Úlfur Már Kruger brons fyrir hönd VBC.


Í flokknum STRÁKAR (12- 13 ára) - 45 kg tók Helgi Bjarg Einarsson brons fyrir hönd VBC, Rihards Zvejnieks keppti einnig í sama flokk en náði ekki á pall í þetta sinn.


Í flokknum STRÁKAR (12- 13 ára) - 55 kg tók Jonathan Logi Avraham gull og er því nýr Íslandsmeistari, Alexander Davíðsson hlaut brons og Roberts Buncis keppti í sama flokk en náði ekki á pall í þetta sinn.


Í flokknum STRÁKAR (14 - 15 ára) - 60 kg tók Elmar Elmarsson gull og er því nýr Íslandsmeistari, Daði Hrafn YU Björgvinsson keppti í sama flokk en náði ekki á pall í þetta sinn.


Í flokknum STRÁKAR (15 - 17 ára) - 70 kg tók Úlfar Kári Þórsson Fitzgerald silfur fyrir hönd VBC.


Í OPNUM FLOKKI UNGLINGA (14 - 17 ára) tók Úlfar Kári Þórsson Fitzgerald silfur fyrir hönd VBC.


Aftur viljum við óska öllum til hamingju með árangurinn.

 
 
 

Comments


VBC 

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page