top of page


Tveir sigrar hjá HFK á IceBox 11
Hnefaleikafélag Kópavogs átti tvo keppendur á IceBox 11 sem fór fram í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði föstudaginn 6. nóvember. Þeir Ísak Guðnason og Fajer Ghazali stóðu sig báðir vel og unnu sína bardaga. Ísak Guðnason Ísak var nýkominn heim frá King of the Ring í Svíþjóð þar sem hann vann gull í Elite A flokki, -75 kg, eftir þrjá sigra. Hann heldur því áfram á góðri siglingu og bætir enn einum sigrinum við. Ísak er á mikilli sigurgöngu, hann hefur átt sex bardaga síðan í

VBC
12 minutes ago1 min read


Emin Kadri enn ósigraður – sjötti atvinnumannasigurinn í höfn
Emin Kadri Eminsson heldur áfram sigurgöngu sinni í atvinnuhnefaleikum. Þann 24. október mætti hann Lettanum Dinars Skripkins í Valencia á Spáni og tryggði sér glæsilegan sigur með rothöggi í annarri lotu. Emin hefur þar með unnið alla sex atvinnumannabardaga sína. Emin sló Skripkins niður í annarri lotu en Lettinn náði að standa upp og halda áfram. Skömmu síðar lenti Emin þungu hægrihandarhöggi sem sendi andstæðinginn aftur í gólfið og þar með var bardaganum lokið. Þetta var

VBC
29 minutes ago1 min read


King of the Ring - Svíþjóð
HFK fór með sex keppendur á King of the Ring í Borås í Svíþjóð dagana 29. október til 1. nóvember. King of the Ring er eitt stærsta alþjóðlega hnefaleikamót karla í heiminum. Í ár kepptu þar 566 boxarar frá 31 landi. 🥇Ísak Guðnason – Elite A, -75 kg Gull Ísak sigraði þrjá bardaga og stóð uppi sem King of the Ring í A flokki. Í fjórðungsúrslitum vann hann Joshua Perkins (Barbells & Punches) 3-0. Í undanúrslitum vann hann Findlay Brown (Johnstone ABC) 4-0. Í úrslitum á sunnud

VBC
54 minutes ago2 min read


Flott frammistaða HFK á síðustu tveimur diplómamótum
Keppendur Hnefaleikafélags Kópavogs hafa staðið sig vel á síðustu tveimur diplómamótum Hnefaleikasambands Íslands. Diplómamót sunnudaginn 25. október Fyrra mótið fór fram hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar sunnudaginn 25. október, þar sem sjö keppendur frá HFK mættu til leiks. Á mótinu hlaut Daníel Trausti gullmerki HNÍ fyrir frábæra frammistöðu á undanförnu ári. Gullmerkið er hæsta viðurkenning sem hægt er að hljóta í diplómahnefaleikum. Diplómamót sunnudaginn 8. nóvember

VBC
1 hour ago1 min read


HFK með tvenn gull og eitt silfur í Danmörku
Keppendur Hnefaleikafélags Kópavogs náðu frábærum árangri á HSK Boxing Cup sem fram fór dagana 9.–11. október í Hillerød í Danmörku. Fjórir keppendur félagsins tóku þátt í mótinu og sneru heim með þrenn verðlaun, tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun. Mótið var haldið í 41. sinn og mættu þar til leiks keppendur frá ýmsum löndum. Fyrir hönd HFK kepptu þeir Ísak Guðnason, Yahya Ghazali, Viktor Örn Sigurðsson og Símon Kristjánsson Sullca. 🥇 Ísak Guðnason – gull í Elite -75 k

VBC
Oct 181 min read


24. mót BJJ mótaraðar ungmenna haldið hjá GFK
Sunnudaginn 27. september var tuttugasta og fjórða mót BJJ mótaraðar ungmenna haldið í húsakynnum VBC. Keppt var í Gi að þessu sinni. Í fyrsta sinn var einnig keppt í fullorðinsflokkum. Alls voru 100 keppendur skráðir til leiks frá þremur félögum, Mjölni, RVK MMA og Glímufélagi Kópavogs. Mótið tókst vel og ríkti góð stemning meðal keppenda, þjálfara og aðstandenda. Úrslit mótsins má sjá hér á Smoothcomp.

VBC
Oct 81 min read


Emin sigrar sinn fimmta atvinnubardaga með rothöggi
Emin Kadri Eminsson sigraði sinn fimmta atvinnubardaga í Oulu í Finnlandi laugardaginn 29. ágúst. Emin mætti Rússanum Nikita Stelmakh í sex lotna bardaga í veltivigt. Emin stjórnaði bardaganum frá upphafi og nýtti faðmlengd sína og hraða vel. Í fimmtu lotu náði Emin þungu hægri handar höggi sem rotaði Stelmakh og lauk þar með bardaganum. Þetta var fyrsti sex lotna atvinnumannabardagi Emin og jafnframt fyrsti rothöggssigur hans sem atvinnumaður. Emin er því enn ósigraður sem a

VBC
Aug 301 min read


HFK og GFK á fyrstu frístundamessu Kópavogs
Hnefaleikafélag Kópavogs og Glímufélag Kópavogs tóku þátt í fyrstu Frístundamessu Kópavogs, og jafnframt þeirri fyrstu sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu, sem haldin var í íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 29. ágúst. Frístundamessan var mjög vel heppnuð, góð mæting var á viðburðinn og góður andi í húsinu. Fjöldi barna og foreldra mætti til að kynna sér fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem stendur börnum og ungmennum til boða í Kópavogi. Gestir fengu að kynna sér sta

VBC
Aug 301 min read


Ungmennastarf - Haustönn 2026
Hjá VBC bjóðum við upp á fjölbreytt ungmennastarf í hnefaleikum og brasilísku jiu jitsu. Markmið okkar er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggjandi æfingaumhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að bæta sig, takast á við nýjar áskoranir og njóta þess að æfa. Æfingarnar eru lagaðar að aldri og getu iðkenda og lögð er áhersla á að byggja upp færni, hreyfigetu, sjálfstraust og leikgleði. Aðaláherslur okkar endurspegla gildi VBC: Metnaður – Liðsheild – Seigla Í ungmennas
gumminn
Aug 101 min read


Icebox 10
Föstudaginn 12. júní fór Icebox fram í tíunda sinn. Upphaflega voru Arnar Jaki, Zalmai og Ísak allir skráðir til keppni, en þegar nær dró hættu andstæðingar þeirra við að koma til landsins og því leit út fyrir að þeir yrðu án bardaga. Ísak skellti sér því á Kanye West tónleika í Hollandi helgina á undan en á miðvikudeginum var honum boðið að keppa gegn William frá HR, sem hann samþykkti þrátt fyrir stuttan fyrirvara. Ísak átti glæsilega frammistöðu í hringnum og sigraði allar
gumminn
Jun 231 min read


Vorhátíð HFK og GFK
Næsta laugardag, 6. júní, kl. 14 - 16 verður vorhátíð HFK og GFK haldin á Smiðjuvegi 28. Grillaðar pylsur og veittar viðurkenningar fyrir árangur vetursins. Allir velkomnir 🥳
gumminn
Jun 11 min read


Emin sigrar sinn fjórða atvinnubardaga
Emin Kadri Eminsson sigraði sinn fjórða atvinnubardaga í Kaupmannahöfn sem fram fór 30. maí. Emin Kadri mætti Erik Mato frá Ungverjalandi sem var að keppa sinn sjötta bardaga. Emin sigraði á einróma dómaraákvörðun, 40-35 en litlu máttu muna að Emin hefði stoppað Erik í fjórðu lotu. Umfjöllun í Ekstrabladet
gumminn
Jun 11 min read


Eindhoven Box Cup
Eindhoven Box Cup, stærsta mót Hollands í ólympískum hnefaleikum, fór fram um síðustu helgi. Þar mættust 27 landslið, alls 177 keppendur. Ísak Guðnason úr HFK keppti fyrir hönd Íslands á sínu fyrsta alþjóðlega móti. Hann sigraði Þýskaland en tapaði svo í undanúrslitum gegn Belgíu og kom því heim með bronsverðlaun 🥉 Ísak hefur bætt sig gríðarlega á síðasta ári og sýndi og sannaði að hann á heima á alþjóðlegum vettvangi. Kjartan Valur Guðmundsson þjálfari var einnig beðinn um
gumminn
May 261 min read


Pirkka Tournament - Finnlandi
Fimm keppendur frá HFK tóku þátt í Pirkka Tournament í Finnlandi, helgina 9. - 10. maí. Hópurinn sem keppti frá Íslandi er hluti af hæfileikamótun Hnefaleikasambands Íslands en mótið er eingöngu fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Alls tóku þátt 11 keppendur frá Íslandi. Fajer Ghazali U15 48 kg keppti sinn þriðja bardaga á móti reyndum boxara úr Finnska landsliðinu með 46 bardaga. Fajer stóð vel í bardaganum en vantaði aðeins upp á til að ná sigrinum. Niðurstaða brons 🥉
gumminn
May 151 min read


Porto Box Cup, stærsta hnefaleikamót í heimi
Stærsta hnefaleikamótí heimi var haldið 25. - 28. mars í Portúgal. Alls voru fjórtán íslenskir keppendur á mótinu, níu frá HFK og 5 frá HR. Á mótinu voru 950 keppendur og barist í 7 hringjum samtímis alla helgina. Úrslit HFK voru eftirfarandi: Fajer Ghazali keppti sinn annan bardaga á móti Breta og stóð sig vel en tapaði naumlega 2-1. Viktor Víkingur keppti á móti Spánverja og tapaði á klofinni dómaraákvörðun Arnar Jaki keppti við Spánverja og tapaði með klofinni dómaraákvörð
gumminn
Apr 191 min read


BJJMU 22 (Gi) mót ungmenna haldið í VBC
Sunnudaginn 15. mars var tuttugasta og annað mót BJJ mótaraðar ungmenna haldið í húsakynnum VBC. Keppt var í Gi að þessu sinni. 92 keppendur voru skráðir til leiks frá þremur félögum, RVK MMA, Mjölni og VBC. Keppendur voru á aldrinum 5 - 16 ára. Eins og áður tókst mótið vel og var góð stemmning hjá öllum þátttakendum. Úrslit mótsins má sjá hér: https://smoothcomp.com/en/event/30037/results
gumminn
Apr 191 min read


Hvítur á leik haldið í mars
Glímumótið Hvítur á leik var haldið í VBC laugardaginn 21. mars og var vel mætt á það. 51 karl og 12 konur tóku þátt, þar af 23 blá belti og heil 40 hvít belti. Teknar voru 101 glíma og stóð mótið frá kl. 10 til að verð 17:30. Mjölnir var með 86 stig - 7 gull 🥇, 6 silfur 🥈og 5 brons 🥉 VBC var með 19 stig - 2 gull 🥇og 1 brons 🥉 Sleipnir með 17 stig - 1 gull 🥇, 2 silfur 🥈 og 2 brons 🥉 Svo voru 2 Superfights: Superfightin voru þannig að þetta voru 8 mín. lotur og keppt
gumminn
Apr 102 min read


Aðalfundur GFK 2026
Aðalfundur Glímufélag Kópavogs verður haldinn á mánudaginn 27. Apríl 2026 Staðsetning: Félagsheimili HFK/GFK Smiðjuvegi 28 Kópavogi Fundur hefst klukkan 19:00 Dagskrá fundar: Formaður setur fundinn og boðar kosningu fundarstjóra og ritara fundarins. Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá hans. Formaður flytur skýrslu stjórnar. Gjaldkeri fer yfir ársreikning. Umræða um skýrslu stjórnar. Kosning formanns Kjör annara stjórnarmanna, lausar stöður í aðalstjórn og
gumminn
Apr 101 min read


Aðalfundur HFK 2026
Aðalfundur Hnefaleikafélag Kópavogs verður haldinn miðvikudaginn 8 Apríl 2026, kl. 19:00. Staðsetning: Félagsheimili HFK Smiðjuvegi 28, Kópavogi. Dagskrá fundar: 1. Formaður setur fundinn og boðar kosningu fundarstjóra og ritara fundarins. 2. Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá hans. 3. Formaður flytur skýrslu stjórnar. 4.Gjaldkeri fer yfir ársreikning. 5. Umræða um skýrslu stjórnar. 6. Kosning formanns 7. Kjör annara stjórnarmanna, lausar stöður í að
gumminn
Mar 111 min read


HFK bikarmeistarar annað árið í röð
Laugardaginn 21. febrúar fór fram Bikarmót í hnefaleikum hjá VBC í Kópavogi. Hnefaleikafélag Kópavogs (HFK) stóð uppi sem bikarmeistari annað árið í röð og átti afar sterka frammistöðu á heimavelli. -70 kg U1 Kormákur Steinn Jónsson (HFK) Kormákur sigraði Misha frá Bogatyr á klofinni dómaraákvörðun í fyrstu viðureign og tryggði sér síðan sigur í annarri viðureign á einróma dómaraákvörðun. -75 kg Elite Ísak Guðnason (HFK) Ísak sigraði Bjarna frá HFR í fyrstu viðureign með TKO
gumminn
Feb 241 min read
bottom of page
