top of page
DSC05950_edited.jpg

Ótímabundin áskrift
14.990 ISK

Ótímabundin áskrift hentar vel þeim sem vilja hafa tækifæri á þvi að mæta í alla tíma i stundatöflu VBC og sjá fyrir sér að stunda bardagaíþróttir í lengri tíma.

 

Í þessari áskriftarleið þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir aðgang að byrjendanámskeiðum í VBC.

Það er fjögurra mánaðar samningstimi í þessari áskrift og eins mánaðar uppsagnartími.

8727FA51-C38D-4A37-94B2-CE7DF2791864.jpeg

Stakur Mánuður
19.900 kr

Ef greitt er fyrir stakan mánuð í VBC hefur þú aðgang að öllum tímum í stundatöflu VBC í einn mánuð.

Hentar fyrir þá sem vilja prófa sig áfram í bardagaíþróttum án þess að binda sig til lengri tíma.

DSC01471_edited.jpg

Byrjendanámskeið

Brasilískt Jiu Jitsu

Byrjendanámskeið í brasilísku jiu jitsu fara fram á fyrstu tveimur vikum mánaðarins, þar sem kennsla fer fram í tveimur kennslustundum, á mánudegi og miðvikudegi.

Restina af mánuðinum er þér svo frjálst að mæta í alla aðra jiu jitsu tíma í VBC.

Farið er yfir mikið efni í þessum tímum og eftir þá muntu hafa hugmynd um hvað íþróttin felur í sér, hver markmið þín eiga að vera og þekkja nokkur uppgjafartök og hvernig skal verjast.

Þrátt fyrir að íþróttin megi virðast flókin og jafnvel yfirþyrmandi er það á nær allra færi að læra hana.

Þjálfari: Daði Steinn

Verð: 19.900 ISK

Byrjendanámskeið

Hnefaleikar

Byrjendanámskeið í hnefaleikum hjá VBC er fyrir 16 ára og eldri.

Kennsla fer fram tvisvar í viku í fjórar vikur, nánar tiltekið milli 18:00 - 19:00 á mánudögum og miðvikudögum.

Farið er yfir allan grunn í ólympískum hnefaleikum skref fyrir skref. Mikið er lagt uppúr undirbúningi einstaklingsins í framhaldstíma.

Áhugi er byggður upp á íþróttinni ásamt skilning á sportinu.

Frábær leið til að komast í form, eignast vini og hafa gaman.

Þjálfari: Kjartan Valur

Verð: 23.990 ISK

f127010560.jpeg
DSC07767.jpg

Byrjendanámskeið

Muay Thai

Muay Thai Byrjendur er lokað 4 vikna námskeið þar sem allir byrja á sama stað, þekkingalega séð.

Enginn krafa um að vera í formi eða þekkingu á íþróttinni. Farið er vel yfir stöður, hreyfingar, högg, spörk, hnéspörk og clinch.

Nemandinn öðlast grunnskilning og þekkingu á íþróttinni áður en haldið er áfram í byrjendatíma.

Kennt: þriðjudaga og fimmtudaga frá 18:00 - 19:00.
Gott er að mæta tímanlega, 10-15 min. fyrir fyrsta tíma.

Íþróttafatnaður: stuttbuxur og bolur. Lánsbúnaður er á staðnum fyrir byrjendur.

Þjálfarar: Aurel Daussin & Birgir Þór.

Verð: 23.990 ISK

Ungmennastarf

DSC01906.jpeg

Hnefaleikar

VBC býður uppá námskeið í hnefaleikum vorönnina 2024. 

Boðið er uppá námskeið fyrir tvo aldurshópa:


5 - 8 ára (45.990 kr fyrir önnina).

9 - 12 ára (55.990 kr fyrir önnina).

13 - 17 ára (65.990 kr fyrir önnina)

Námskeið í hnefaleikum felur í sér áherslu á aukinn styrk, hreyfifærni, tæknilega færni og grunn í hnefaleikum.

 

Þessi námskeið stuðla einnig að miklum félagslegum þroska fyrir iðkendur, bætingar á sjálfstrausti, sjálfsaga og auðmýkt sem er allt nauðsynlegir eiginleikar í nútímasamfélagi.

DSC05825.jpeg

Brasilískt Jiu Jitsu

VBC býður uppá námskeið í brasilísku jiu jitsu vorönnina 2024.

Boðið er uppá námskeið fyrir fjóra aldurshópa:


4 - 7 ára (45.990 fyrir önnina).

7 - 10 ára (55.990 fyrir önnina).

10 - 13 ára (65.990 fyrir önnina)

13 - 17 ára (65.990 fyrir önnina)

Í námskeiðum fyrir tvo yngri hópana er áhersla lögð á leikgleði, að auka hreyfigetu og færni ásamt því að kynna grunnhreyfingar í brasilísku jiu jitsu.

Í námskeiðum fyrir tvo eldri hópana færist áherslan meira yfir í styrktarþjálfun, tæknilega færni og leikfræði í jiu jitsu.

Þessi námskeið stuðla einnig að miklum félagslegum þroska fyrir iðkendur, bætingar á sjálfstrausti, sjálfsaga og auðmýkt sem er allt nauðsynlegir eiginlegar í nútímasamfélagi.

VBC FATNAÐUR

VBC fatnaður æst í afgreiðslunni en þar eigum við til peysur, hettupeysur, boli og rashguard fyrir börn og unglinga.
 

bottom of page