top of page

​Siðareglur GFK/HFK

1. Heiðarleiki og háttvísi
Við komum fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum okkur og öðrum, bæði innan og utan æfingasalar.


2. Trúnaður og þagmælska
Við gætum trúnaðar og þagmælsku í störfum okkar með þeim undantekningum sem lögbundin tilkynningarskylda felur í sér. Þagnarskylda á ekki við ef grunur vaknar um vanrækslu, ofbeldi eða að barn búi við óviðunandi aðstæður - þá ber að tilkynna slíkt í samræmi við barnaverndarlög.

 

3. Valdamisnotkun
Við misnotum ekki valdastöðu okkar eða yfirburði sem við kunnum að hafa yfir öðrum. Við nýtum aldrei aðstöðu okkar til að mynda óviðeigandi eða náin tengsl við þátttakendur.

 

4. Jafnræði og virðing
Við gætum jafnræðis og forðumst að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa, óháð kyni, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslegri stöðu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Fagmennska og virðing skal ávallt vera í forgrunni.

 

5. Fjárhættuspil og veðmál
Við tökum ekki þátt í veðmálum, fjárhættuspilum, happdrætti eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem við getum haft áhrif á.

 

6. Gjafir og hlunnindi
Við þiggjum hvorki gjafir né hlunnindi sem geta rýrt trúverðugleika, sjálfstæði eða hlutleysi okkar.

 

7. Öryggi barna og ungmenna
Við sýnum fyllstu aðgát í starfi með börnum og ungmennum. Aldrei má stefna heilsu eða öryggi þátttakenda í hættu.

 

8. Virðing fyrir mörkum
Við virðum mörk annarra og forðumst snertingar eða hegðun sem getur valdið óþægindum eða misskilningi.

 

9. Fagmennska og fyrirmyndarhlutverk
Þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar eru fyrirmyndir í starfi félagsins og skulu sýna góða hegðun, ábyrgð og virðingu – jafnt innan sem utan æfingarsalar. Samskipti við þátttakendur skulu ávallt fara fram í gegnum viðurkenndar leiðir og með öryggi og velferð að leiðarljósi. Rafræn samskipti við börn og ungmenni undir 18 ára aldri skulu einungis fara fram með vitneskju forsjáraðila.
Forðast skal aðstæður þar sem fullorðinn einstaklingur er einn með þátttakanda, bæði innan og utan æfingarsvæðis, nema slíkt teljist eðlilegt í samhengi við starfið, öryggi þátttakanda sé tryggt og forsjáraðilar séu meðvitaðir um aðstæðurnar.

 

10. Ávana- og vímuefni
Notkun tóbaks, nikótínvara, áfengis og annarra ávana- og vímuefna er óheimil í tengslum við starfsemi félagsins, þar með talið á lóð félagsins, æfingum, mótum, ferðalögum og öðrum viðburðum á vegum félagsins. Notkun ólöglegra efna, lyfjamisnotkun eða efna sem brjóta gegn reglum íþróttahreyfingarinnar um lyfjanotkun er stranglega bönnuð og getur leitt til brottvísunar úr starfi eða félaginu.

 

11. Ljósmyndir og friðhelgi
Ljósmyndun innan starfsemi félagsins skal ávallt fara fram með virðingu fyrir friðhelgi þátttakenda. Ekki má taka eða birta óviðeigandi myndir og myndir skulu aldrei notaðar í einkaneyslu.

 

12. Upplýsingagjöf og samskipti
Starf félagsins skal byggja á gagnsæi og heiðarleika. Þeir sem koma fram fyrir hönd félagsins skulu veita réttar og yfirvegaðar upplýsingar og virða trúnað, t.d. í samskiptum við fjölmiðla.

 

13. Ábyrgð og eftirfylgni
Öll störf innan félagsins skulu fara fram í samræmi við þessar siðareglur. Við berum sameiginlega ábyrgð á því að virða þær og minna hvert annað á mikilvægi þeirra í daglegu starfi félagsins.


Siðareglur ÍSÍ
Siðareglur Glímufélags Kópavogs (GFK) og Hnefaleikafélags Kópavogs (HFK) byggja á siðareglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og endurspegla þau gildi sem ÍSÍ setur fyrir allt íþróttastarf á Íslandi.
HFK er aðili að Hnefaleikasambandi Íslands (HNÍ) sem tilheyrir ÍSÍ og viðurkennir því siðareglur ÍSÍ sem hluta af faglegum ramma sínum. Siðareglur GFK/HFK eru staðbundin útfærsla sem tekur mið af daglegu starfi félagsins og því umhverfi sem það starfar í, með áherslu á öryggi, virðingu, jafnræði og ábyrgð.
Öll störf, samskipti og viðmót innan félagsins skulu vera í samræmi við siðareglur GFK/HFK og siðareglur ÍSÍ, sem eru aðgengilegar á vef ÍSÍ.

GFK/HFK code of conduct

1. Integrity and respectful conduct
We act with complete honesty and show respectful behavior toward ourselves and others, both inside and outside the training environment.

 

2. Confidentiality and discretion
We uphold confidentiality and discretion in our work, except where mandatory reporting obligations apply. Confidentiality does not apply in cases where there is suspicion of neglect, abuse, or a child living in unsafe conditions – such concerns must be reported in accordance with child protection laws.

 

3. Abuse of power
We do not abuse our position of authority or any advantage we may have over others. We never use our role to form inappropriate or overly close relationships with participants.

 

4. Equality and respect
We promote equality and avoid any behavior that disrespects individuals or groups based on gender, race, national origin, religion, beliefs, disability, social status, age, sexual orientation, gender identity, sex characteristics, or gender expression. We must always act with professionalism and respect.

 

5. Gambling and betting
We do not take part in betting, gambling, lotteries, or financial transactions related to sporting events that we may have influence over.

 

6. Gifts and benefits
We do not accept gifts or benefits that may compromise our credibility, independence, or impartiality.

 

7. Child and youth safety
We exercise the utmost care when working with children and young people. The health and safety of participants must never be put at risk.

 

8. Respecting boundaries
We respect the personal boundaries of others and avoid physical contact or behavior that could cause discomfort or be misunderstood.

 

9. Professionalism and role modeling
Coaches, board members, and volunteers are role models in the club and must demonstrate good behavior, responsibility, and respect – both inside and outside the training environment. Communication with participants must always take place through approved channels and with the safety and well-being of the participants in mind. Electronic communication with children and youth under the age of 18 must only occur with the knowledge of their legal guardians.
Situations where an adult is alone with a participant, either within or outside the training area, should be avoided unless clearly appropriate in the context of the activity, the participant’s safety is ensured, and the guardians are informed. 

 

10. Substances and intoxicants
The use of tobacco, nicotine products, alcohol, and other addictive or intoxicating substances is prohibited in connection with club activities – including on club premises, during practices, competitions, trips, and other club events. The use of illegal substances, misuse of medication, or substances that violate the rules of the sports movement regarding doping is strictly forbidden and may result in dismissal from duties or expulsion from the club.

 

11. Photography and privacy
Photography within club activities must always be carried out with respect for the privacy of participants. Inappropriate photos must not be taken or shared, and images must never be used for personal purposes.

 

12. Information sharing and communication
The clubs operations shall be based on transparency and honesty. Those who represent the organization must provide accurate, and responsible information while respecting confidentiality, for example in communication with the media.

 

13. Responsibility and follow-up
All activities within the club must be carried out in accordance with this Code of Conduct. We share a collective responsibility to respect these principles and to remind each other of their importance in the daily activities of the club.
 

Code of Conduct – The National Olympic and Sports Association of Iceland
The Code of Conduct of Glímufélag Kópavogs (GFK) and Hnefaleikafélag Kópavogs (HFK) is based on the Code of Conduct of the National Olympic and Sports Association of Iceland (ÍSÍ) and reflects the values that ÍSÍ promotes for all sporting activities in Iceland. 
HFK is a member of the Icelandic Boxing Federation (HNÍ), which operates under ÍSÍ, and therefore recognizes the ÍSÍ Code of Conduct as part of its professional framework. The GFK/HFK Code of Conduct is a localized version that reflects the daily operations of the club and the environment in which it operates, with an emphasis on safety, respect, equality, and responsibility.
All work, communication, and conduct within the club must comply with both the GFK/HFK Code of Conduct and the ÍSÍ Code of Conduct, which is available on the ÍSÍ website.

VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page