top of page

Ungmennastarf - Hnefaleikar

Hjá VBC bjóðum við upp á hnefaleika fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6–18 ára.

Í ungmennastarfi hnefaleika læra iðkendur undirstöðuatriði íþróttarinnar í öruggu, jákvæðu og öguðu æfingaumhverfi. Áhersla er lögð á rétta tækni, fótaburð, samhæfingu og hreyfingu ásamt því að byggja upp styrk og úthald.

​

Æfingarnar eru lagaðar að aldri og getu iðkenda og markmiðið er að hver og einn fái tækifæri til að bæta sig, takast á við nýjar áskoranir og öðlast aukið sjálfstraust.

​

Yfirþjálfari ungmennastarfs hnefaleika er Kjartan Valur Guðmundsson.

 

Aðaláherslur okkar eru í takt við gildi VBC:

Metnaður – Liðsheild – Seigla

​

Við leggjum einnig mikla áherslu á aga, virðingu, hreyfigetu og leikgleði.

Hnefaleikar eru einstaklingsíþrótt en æfingarnar byggja jafnframt upp sterka liðsheild. Iðkendur læra að sýna æfingafélögum virðingu, vinna að markmiðum sínum og takast á við bæði árangur og mótlæti.

​

 

 

Hnefaleikar, 6 - 11 ára​​​

Fæðingarár: 2015 - 2020

Námskeið með áherslu á aukin styrk, tæknilega færni og grunn í hnefaleikum.

 

Æfingar á haustönn (24. ágúst - 9. desember):

  Mánudögum 16:15 - 17:00

  Miðvikudögum 16:15 - 17:00​

 

 

Hnefaleikar, 12 - 18 ára​​​

Fæðingarár: 2008 - 2014

Námskeið með áherslu á aukin styrk, tæknilega færni og grunn í hnefaleikum.

 

Box1 Unglingar (Byrjendur)

Farið yfir grunnatriðin í hnefaleikum á hraða hvers og eins, skemmtileg leið til að komast í gott form, byggja upp sjálfstraust og hafa gaman. Undirbúningur fyrir diplóma hnefaleika þar sem dæmt er eftir tækni og fótavinnu, mínus stig eru gefin fyrir þung högg.

​

Æfingar á haustönn (24. ágúst - 11. desember):

  Mánudaga 16:00 - 17:00

  Miðvikudaga 16:00 - 17:00

  Föstudaga 17:00 - 18:30

​

Box2 Unglingar (Framhaldshópur)

Framhalds hópur er ætlaður fyrir þá sem eru að keppa nú þegar í Ólympískum og diplóma hnefaleikum. Gerð er krafa um að eiga eigin búnað í þessum hóp.

​

Æfingar á haustönn (24. ágúst - 11. desember):

Boxæfingar

  Mánudaga 17:00 - 18:30

  Miðvikudaga 17:00 - 18:30

  Föstudaga 17:00 - 18:30

 

Styrktaræfingar 

  Þriðjudaga 17:00 - 18:00

  Fimmtudaga 17:00 - 18:00

 

Sparr æfing

  Laugardaga 13:00 - 14:00

IMG_1541.jpeg

VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page