top of page

Ungmennastarf - Brasilískt Jiu Jitsu

Hjá VBC bjóðum við upp á brasilískt jiu jitsu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 3–17 ára.

Í ungmennastarfi BJJ læra iðkendur undirstöðuatriði í brasilísku jiu jitsu í öruggu og uppbyggjandi umhverfi. Æfingarnar eru lagaðar að aldri og getu iðkenda og lögð er áhersla á að byggja upp færni, hreyfigetu og sjálfstraust á eigin hraða.

​

Brasilískt jiu jitsu reynir bæði á líkamlega og andlega færni. Iðkendur læra að leysa verkefni, takast á við áskoranir og vinna með öðrum, um leið og þeir bæta styrk, samhæfingu og líkamsvitund.

 

Yfirþjálfari ungmennastarfs BJJ er Eiður Sigurðsson.

 

Aðaláherslur okkar eru í takt við gildi VBC:

Metnaður – Liðsheild – Seigla

​

Við leggjum jafnframt mikla áherslu á leikgleði, virðingu og jákvæða upplifun af íþróttinni.

Markmiðið er að iðkendur bæti sig sem íþróttafólk en ekki síður að starfið stuðli að sjálfstrausti, sjálfsaga, auðmýkt og góðum félagslegum tengslum.

​

 

 

Brasilískt Jiu Jitsu, 3 - 5 ára​​​

Fæðingarár: 2021 - 2023

Áhersla á leik og gleði, stuðlar að aukinni hreyfigetu og færni. Grunn hreyfingar og tækni í Jiu Jitsu kynntar.

 

Æfingar á haustönn (25. ágúst - 12. desember):
  Þriðjudögum og fimmtudögum kl.16:15 - 17:00 (Gi æfingar)
  Laugardögum kl. 11:00 - 12:00 (Nogi æfingar)
​

 

 

Brasilískt Jiu Jitsu, 6 - 8 ára​​​

Fæðingarár: 2018 - 2020

Áhersla á leik og gleði, stuðlar að aukinni hreyfigetu og færni. Grunn hreyfingar og tækni í Jiu Jitsu kynntar.

​

Æfingar á haustönn (25. ágúst - 12. desember):
  Þriðjudögum og fimmtudögum kl.16:30 - 18:00 (Gi æfingar)
  Laugardögum kl. 11:00 - 12:00 (Nogi æfingar)
​

 

 

Brasilískt Jiu Jitsu, 9 - 13 ára​​​

Fæðingarár: 2013 - 2017

Lögð er áhersla á aukin styrk, tæknilega færni og leikfræði í Jiu Jitsu.

​

Æfingar á haustönn (25. ágúst - 12. desember):
  Mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 16:30 - 19:00
  Laugardögum kl. 13:00 - 14:00

 

 

Brasilískt Jiu Jitsu, 14 - 17 ára​​​

Fæðingarár: 2009 - 2012

Lögð er áhersla á aukin styrk, tæknilega færni og leikfræði í Jiu Jitsu.

​

Æfingar á haustönn (25. ágúst - 12. desember):

  Mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 16:30 - 19:00
  Laugardögum kl. 13:00 - 14:00

IMG_1540.jpeg

VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page