Reglur GFK/HFK
Almenn viðmið
-
Berðu alltaf virðingu fyrir félaginu, þjálfurum og æfingarfélögum þínum.
-
Einelti, dónaskapur og hvers kyns ofbeldishegðun er ekki liðin í félaginu.
-
Allt sem þú lærir í félaginu skal einungis nota á æfingum og í keppnum.
-
Við keppum undir merkjum GFK/HFK.
-
Virðum ákvarðanir og leiðbeiningar þjálfara, sem bera ábyrgð á öryggi og framþróun allra.
-
Við tökum vel á móti öllum og stöndum saman um virðingu og jafnrétti.
-
Notkun áfengis, tóbaks, nikótínvara og annarra ávana- eða vímuefna er óheimil í tengslum við æfingar, keppnir, viðburði og aðra starfsemi á vegum félagsins.
Hegðun á æfingum
-
Komdu á æfingu á réttum tíma.
-
Ef þú mætir seint, komdu þá hljóðlega inn, hitaðu upp og taktu svo þátt í æfingunni.
-
Ef þú þarft að fara fyrr, tilkynntu þjálfaranum þínum það áður en æfingin byrjar.
-
Ekki tala á meðan þjálfarinn er að gefa fyrirmæli.
-
Stuðlaðu að góðum æfingaranda og gerðu alltaf þitt besta eftir þinni bestu getu.
-
Farsímar eiga ekki heima á æfingu. Einbeiting og virðing fyrir æfingunni er í forgrunni.
-
Hafðu gaman þegar þú æfir og ekki meiða æfingafélagana.
-
Mundu: Þú ert ekki aðalatriðið í félaginu heldur æfingarfélaginn þinn.
-
Stífar æfingar, auðveldar sigur!
Hreinlæti og heilsa
-
Hugaðu að hreinlæti fyrir æfingar. Hrein æfingaföt og búnaður stuðlar að minni hættu á útbreiðslu baktería í æfingarsalnum.
-
Ef þú ert með sár, gakktu þá úr skugga að loka því vel fyrir æfingu.
-
Æfðu aldrei þegar þú ert veik(ur), bæði þín vegna og til að forðast að smita æfingafélaga.
-
Neysla matvæla er ekki leyfð í æfingarsalnum fyrir utan vatn.
-
Dýr eru ekki leyfð í húsinu.
Afleiðingar brota
Brot á reglum félagsins geta haft afleiðingar sem fara eftir því hversu alvarlegt brotið er og hvort um ítrekað brot sé að ræða. Viðurlög geta verið munnleg áminning, skrifleg áminning, tímabundið bann frá æfingum eða annarri þátttöku, eða brottvikning úr félaginu.
Stjórnin tekur ákvörðun um slík viðurlög í samráði við þjálfara og aðra ábyrgðaraðila eftir að málið hefur verið skoðað, með öryggi, vellíðan og jákvætt æfingaumhverfi í huga.
Markmiðið er alltaf að leiðbeina og styðja iðkendur til að vaxa í gegnum reglusemi og virðingu – ekki bara refsa.
Hegðunarreglur ÍSÍ
GFK/HFK fylgir hegðunarviðmiðum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og byggir starf sitt á þeim grunni. Viðmiðin eru hluti af verklagi félagsins og gilda fyrir þjálfara, iðkendur, stjórnarmenn, starfsfólk og forsjáraðila.
Rules of GFK/HFK
General guidelines
-
Always show respect for the club, your coaches, and your training partners.
-
Bullying, rudeness, and any form of violent behavior are not tolerated at the club.
-
Everything you learn in the club is only to be used in training and competitions.
-
We compete under the banner of GFK/HFK.
-
We respect the decisions and guidance of coaches, who are responsible for the safety and development of all participants.
-
Everyone is welcome, and we show respect and fairness to each other.
-
The use of alcohol, tobacco, nicotine products, and other addictive or intoxicating substances is strictly prohibited in connection with training, competitions, events, and other activities organized by the club.
Training conduct
-
Please show up on time for practice.
-
If you are late, enter quietly, warm up, and join the session.
-
If you need to leave early, let your coach know before practice begins.
-
Do not talk while the coach is giving instructions .
-
Help create a positive training atmosphere and always do your best.
-
Mobile phones do not belong in training – focus and respect are key.
-
Have fun while training, and do not hurt your training partners.
-
Remember: You are not the most important person in the gym - your training partner is.
-
Hard training makes winning easier!
Hygiene and health
-
Take care of your hygiene before training. Clean training clothes and equipment help prevent the spread of bacteria in the gym.
-
If you have a wound, make sure it is properly covered before training.
-
Never train when you are sick – for your own health and to protect your training partners.
-
Eating is not allowed in the training area – except for drinking water.
-
Animals are not allowed inside the facility.
Consequences of rule violations
Violating the club's rules can lead to consequences, depending on the seriousness of the violation and whether it is a repeated offense. Consequences may include a verbal warning, written warning, temporary suspension from training or participation, or expulsion from the club.
The board decides on such actions in consultation with coaches and other responsible parties, after reviewing the matter with a focus on safety, well-being, and maintaining a positive training environment.
The goal is always to guide and support members in growing through discipline and respect – not just to punish.
Code of Conduct – The National Olympic and Sports Association of Iceland
GFK/HFK adheres to the behavioral guidelines of the National Olympic and Sports Association of Iceland (ÍSÍ) and bases its operations on those principles. These guidelines are an integral part of the club’s procedures and apply to coaches, athletes, board members, staff, and legal guardians.
