Ungmennastarf VBC
Hjá VBC bjóðum við upp á fjölbreytt ungmennastarf í hnefaleikum og brasilísku jiu jitsu.
Markmið okkar er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggjandi æfingaumhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að bæta sig, takast á við nýjar áskoranir og njóta þess að æfa.
Æfingarnar eru lagaðar að aldri og getu iðkenda og lögð er áhersla á að byggja upp færni, hreyfigetu, sjálfstraust og leikgleði.
Aðaláherslur okkar endurspegla gildi VBC:
Metnaður – Liðsheild – Seigla
Í ungmennastarfinu leggjum við ekki aðeins áherslu á framfarir í íþróttinni. Í gegnum æfingar, samvinnu og áskoranir öðlast iðkendur aukið sjálfstraust, sjálfsaga og auðmýkt ásamt því að mynda sterk félagsleg tengsl.
Kynntu þér ungmennastarfið okkar
Ungmennastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6–18 ára.
Ungmennastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 3–17 ára.


