top of page
  • Writer's pictureTorfi Þór Tryggvason

Blábeltingamót VBC 2023

Nú flýgur árið áfram og blábeltingamót VBC er næsta mót á dagskrá hjá okkur.

Mótið fer fram þann 1. apríl næstkomandi, en skráningarfrestur er til miðnættis 30. mars.


Mótið fer fram í húsnæði VBC í Smiðjuvegi 28 (Græna gata) og mótsgjald eru 4.000 kr.

Um Gi-mót er að ræða og allir keppendur verða vigtaðir í galla. Keppt er í eftirfarandi þyngarflokkum: Kvenna:

-64 kg flokkur

-74kg flokkur

+74 kg flokkur


Karla:

-64 kg flokkur

-70 kg flokkur

-76 kg flokkur

-82 kg flokkur

-88 kg flokkur

-94 kg flokkur

-100 kg flokkur

+100 kg flokkur


Þyngdarflokkar verða hugsanlega sameinaðir ef fáir keppendur skrá sig í einhverja flokka. Flokkar eru alltaf sameinaðir við þyngri flokk og því er ekki hægt að sameina +74 kg kvk og +100 kg kk ef það er slök mæting í þá flokka.


Keppt verður samkvæmt IBJJF reglum fyrir blábeltinga, sem má lesa um hér: http://ibjjf.org/rules/


Athugið að mótið er aðeins fyrir 18 ára og eldri, með blátt belti í BJJ eða sambærilega reynslu úr öðrum glímuíþróttum. Keppendur sem eru eldri en 16 ára geta fengið undanþágu til að taka þátt, með skriflegu samþykki þjálfara og forráðamanns. Keppendur sem eru enn með hvítt belti en hafa keppnisreynslu geta fengið undanþágu til að taka þátt með samþykki þjálfara. Athugið að þeir sem hafa keppt á blábeltingamóti geta ekki skráð sig í mót VBC fyrir hvítbeltinga.

Vinsamlegast vandið skráningu í réttan þyngdarflokk. Engar undanþágur eru veittar vegna þyngdarflokka og keppnisgjald fæst ekki endurgreitt. Senda má fyrirspurnir um mótið til motstjori@vbc.is

23 views0 comments
bottom of page