top of page

HFK með tvenn gull og eitt silfur í Danmörku

Writer: VBC
VBC
4 days ago
1 min read

Updated: 3 days ago

Keppendur Hnefaleikafélags Kópavogs náðu frábærum árangri á HSK Boxing Cup sem fram fór dagana 9.–11. október í Hillerød í Danmörku. Fjórir keppendur félagsins tóku þátt í mótinu og sneru heim með þrenn verðlaun, tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun.


Mótið var haldið í 41. sinn og mættu þar til leiks keppendur frá ýmsum löndum. Fyrir hönd HFK kepptu þeir Ísak Guðnason, Yahya Ghazali, Viktor Örn Sigurðsson og Símon Kristjánsson Sullca.


🥇 Ísak Guðnason – gull í Elite -75 kg


Ísak Guðnason, valinn besti boxari Íslandsmeistaramótsins 2025, sýndi frábæra takta í Elite-flokki í -75 kg. Hann sigraði tvo danska andstæðinga á leið sinni að gullverðlaununum, fyrst Viktor Knudsen frá EBBK Esbjerg og síðan Mark Højfeldt frá BK Vitus Horsens í úrslitum.


🥇 Yahya Ghazali – gull í U19 -75 kg


Yahya Ghazali keppti í U19-flokki í -75 kg og fór beint í úrslit. Þar mætti hann Bretanum Cole Speed-Ramsey frá Trinity Boxing Academy og hafði betur í viðureigninni. Með sigrinum tryggði Yahya HFK önnur gullverðlaun mótsins.


🥈 Viktor Örn Sigurðsson – silfur í U19 -80 kg


Viktor Örn Sigurðsson keppti í U19-flokki í -80 kg og tryggði sér silfurverðlaun. Hann mætti Englendingnum Luca Johnson í úrslitum og þurfti að sætta sig við tap eftir viðureignina.


Símon Kristjánsson Sullca - Elite –70 kg


Símon Kristjánsson Sullca keppti í Elite-flokki karla í –70 kg. Þar mætti hann Dananum Omar Mustapha frá Slagelse Bokse-klub en Omar hafði betur í viðureigninni.



Árangur keppenda HFK í Danmörku endurspeglar þá öflugu uppbyggingu og metnaðarfullu þjálfun sem fer fram innan félagsins.


HFK óskar öllum fjórum keppendunum og þjálfara þeirra Kjartan Val Guðmundssyni innilega til hamingju með frammistöðuna og glæsilegan árangur á mótinu!



 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page