top of page

Emin sigrar sinn fimmta atvinnubardaga með rothöggi

Writer: VBC
VBC
Aug 30
1 min read

Emin Kadri Eminsson sigraði sinn fimmta atvinnubardaga í Oulu í Finnlandi laugardaginn 29. ágúst. Emin mætti Rússanum Nikita Stelmakh í sex lotna bardaga í veltivigt.


Emin stjórnaði bardaganum frá upphafi og nýtti faðmlengd sína og hraða vel. Í fimmtu lotu náði Emin þungu hægri handar höggi sem rotaði Stelmakh og lauk þar með bardaganum.


Þetta var fyrsti sex lotna atvinnumannabardagi Emin og jafnframt fyrsti rothöggssigur hans sem atvinnumaður.


Emin er því enn ósigraður sem atvinnumaður eftir fimm bardaga og stendur nú með fimm sigra og ekkert tap, 5–0 🥊.




 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page