Emin Kadri enn ósigraður – sjötti atvinnumannasigurinn í höfn

Emin Kadri Eminsson heldur áfram sigurgöngu sinni í atvinnuhnefaleikum. Þann 24. október mætti hann Lettanum Dinars Skripkins í Valencia á Spáni og tryggði sér glæsilegan sigur með rothöggi í annarri lotu. Emin hefur þar með unnið alla sex atvinnumannabardaga sína.
Emin sló Skripkins niður í annarri lotu en Lettinn náði að standa upp og halda áfram. Skömmu síðar lenti Emin þungu hægrihandarhöggi sem sendi andstæðinginn aftur í gólfið og þar með var bardaganum lokið.
Þetta var fjórði sigur Emins á árinu og annar bardaginn í röð sem hann vinnur með rothöggi.
Emin ólst upp í hnefaleikastarfinu hjá HFK og hefur í gegnum árin náð frábærum árangri, bæði hér heima og erlendis. Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur hjá HFK að fylgjast með honum halda áfram að byggja upp feril sinn á atvinnumannastigi.
Við óskum Emin innilega til hamingju með sigurinn!
Hægt er að sjá bardagann í heild sinni hér á Youtube.






Comments