top of page

King of the Ring - Svíþjóð

Writer: VBC
VBC
2h
2 min read

HFK fór með sex keppendur á King of the Ring í Borås í Svíþjóð dagana 29. október til 1. nóvember. King of the Ring er eitt stærsta alþjóðlega hnefaleikamót karla í heiminum. Í ár kepptu þar 566 boxarar frá 31 landi.


🥇Ísak Guðnason – Elite A, -75 kg Gull 

Ísak sigraði þrjá bardaga og stóð uppi sem King of the Ring í A flokki. Í fjórðungsúrslitum vann hann Joshua Perkins (Barbells & Punches) 3-0. Í undanúrslitum vann hann Findlay Brown (Johnstone ABC) 4-0. Í úrslitum á sunnudeginum vann hann Liam Huntley (The Wolves Den ABC) 3-2.


🥈Viktor Örn Sigurðsson – U19 B, -80 kg Silfur

Viktor keppti til úrslita við Luca Johnson (Leo’s Gym). Eftir tvær lotur voru þeir jafnir á stigum en Viktor vantaði örlítið upp á til að landa sigrinum. Hann átti flotta frammistöðu og fékk silfur.


🥇Yahya Ghazali – U19 B, -75 kg Gull

Yahya tapaði í undanúrslitum fyrir Jamie Robinson (Left Hook). Á sunnudeginum fékk hann bardaga við Jousef Merdas (Gottsunda BK) sem hafði verið settur í rangan flokk. Þar sigraði Yahya örugglega 5-0.


🥉Dorian James Anderson – Elite C, -75 kg Brons

Dorian vann Omran Sepahizada (AIK) 3-0 í fjórðungsúrslitum. Hann tapaði svo í undanúrslitum fyrir Joey van den Broek (Team HVO).


Demario Elijah Anderson – Elite C, -80 kg

Demario mætti Samary Sahabuddin (The Punch Boxing Tilburg) í fjórðungsúrslitum. Hann tapaði en átti flotta frammistöðu.


Símon Kristjánsson Sullca – Elite B, -70 kg

Símon mætti Franses Franso (BK Ringen) í fjórðungsúrslitum. Hann átti fína frammistöðu en náði ekki sigri.


Ferðin var mikil og dýrmæt reynsla fyrir hópinn. Strákarnir mættu sterkum andstæðingum frá mörgum löndum og sáu hvar þeir standa. Við tökum það með okkur heim og höldum áfram að vinna.

Takk öll sem studdu við ferðina og fylgdust með heiman frá.




 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page