Tveir sigrar hjá HFK á IceBox 11

Hnefaleikafélag Kópavogs átti tvo keppendur á IceBox 11 sem fór fram í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði föstudaginn 6. nóvember. Þeir Ísak Guðnason og Fajer Ghazali stóðu sig báðir vel og unnu sína bardaga.
Ísak Guðnason
Ísak var nýkominn heim frá King of the Ring í Svíþjóð þar sem hann vann gull í Elite A flokki, -75 kg, eftir þrjá sigra. Hann heldur því áfram á góðri siglingu og bætir enn einum sigrinum við. Ísak er á mikilli sigurgöngu, hann hefur átt sex bardaga síðan í byrjun október og unnið þá alla.
Fajer Ghazali
Fajer hefur verið duglegur að afla sér keppnisreynslu bæði hér heima og erlendis. Fyrr á árinu keppti hann meðal annars á Porto Box Cup í Portúgal og Pirkka Tournament í Finnlandi, þar sem hann hlaut bronsverðlaun.
Við óskum Ísaki og Fajer innilega til hamingju með sigrana!























Comments