top of page

HFK og GFK á fyrstu frístundamessu Kópavogs

Writer: VBC
VBC
Aug 30
1 min read

Updated: Aug 31

Hnefaleikafélag Kópavogs og Glímufélag Kópavogs tóku þátt í fyrstu Frístundamessu Kópavogs, og jafnframt þeirri fyrstu sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu, sem haldin var í íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 29. ágúst.


Frístundamessan var mjög vel heppnuð, góð mæting var á viðburðinn og góður andi í húsinu. Fjöldi barna og foreldra mætti til að kynna sér fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem stendur börnum og ungmennum til boða í Kópavogi.


Gestir fengu að kynna sér starfsemi HFK og GFK. Félögin voru með æfingadýnu í miðjum salnum þar sem börn gátu fengið stutta grunnkennslu í hnefaleikum og brasilísku jiu-jitsu undir leiðsögn þjálfara og iðkenda félagsins.


Við þökkum Kópavogsbæ fyrir vel skipulagðan og skemmtilegan viðburð og öllum þeim sem komu við hjá okkur, kynntu sér starf félagsins og prófuðu hnefaleika og BJJ.



 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page