Icebox 10
- gumminn
- 12 minutes ago
- 1 min read
Föstudaginn 12. júní fór Icebox fram í tíunda sinn.
Upphaflega voru Arnar Jaki, Zalmai og Ísak allir skráðir til keppni, en þegar nær dró hættu andstæðingar þeirra við að koma til landsins og því leit út fyrir að þeir yrðu án bardaga.
Ísak skellti sér því á Kanye West tónleika í Hollandi helgina á undan en á miðvikudeginum var honum boðið að keppa gegn William frá HR, sem hann samþykkti þrátt fyrir stuttan fyrirvara.
Ísak átti glæsilega frammistöðu í hringnum og sigraði allar loturnar með sannfærandi hætti. Dómarar voru sammála um sigur hans og féll dómurinn 5–0 honum í vil.
HFK átti einnig tvo glæsilega fulltrúa meðal dómara mótsins. Það voru þeir Axel Ingi Jónsson og Heiðvin Birkir Lindbergh sem stóðu sig með mikilli prýði.










Comments