top of page

Ungmennastarf - Haustönn 2026

  • gumminn
  • Aug 10
  • 1 min read

Hjá VBC bjóðum við upp á fjölbreytt ungmennastarf í hnefaleikum og brasilísku jiu jitsu.


Markmið okkar er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggjandi æfingaumhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að bæta sig, takast á við nýjar áskoranir og njóta þess að æfa.


Æfingarnar eru lagaðar að aldri og getu iðkenda og lögð er áhersla á að byggja upp færni, hreyfigetu, sjálfstraust og leikgleði.


Aðaláherslur okkar endurspegla gildi VBC:

Metnaður – Liðsheild – Seigla


​Í ungmennastarfinu leggjum við ekki aðeins áherslu á framfarir í íþróttinni. Í gegnum æfingar, samvinnu og áskoranir öðlast iðkendur aukið sjálfstraust, sjálfsaga og auðmýkt ásamt því að mynda sterk félagsleg tengsl.


Haustönn ungmennastarfs VBC byrjar 25. ágúst.


Í boði eru æfingar í hnefaleikum fyrir 6–18 ára og brasilísku jiu jitsu fyrir 3–17 ára.

Hér fyrir neðan má sjá þá hópana sem í boði eru.



Hnefaleikar


Skráning í:





Brasilískt Jiu Jitsu


Skráning í:





 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page