top of page

Eindhoven Box Cup

  • gumminn
  • 4 days ago
  • 1 min read

Eindhoven Box Cup, stærsta mót Hollands í ólympískum hnefaleikum, fór fram um síðustu helgi. Þar mættust 27 landslið, alls 177 keppendur.


Ísak Guðnason úr HFK keppti fyrir hönd Íslands á sínu fyrsta alþjóðlega móti. Hann sigraði Þýskaland en tapaði svo í undanúrslitum gegn Belgíu og kom því heim með bronsverðlaun 🥉

Ísak hefur bætt sig gríðarlega á síðasta ári og sýndi og sannaði að hann á heima á alþjóðlegum vettvangi.


Kjartan Valur Guðmundsson þjálfari var einnig beðinn um að halda utan um tvo heimsklassa boxara frá Nígeríu um helgina, þau Kenneth og Patriciu, sem nýlega tryggðu sér sæti á Commonwealth leikunum.


Kenneth sigraði Þýskaland en tapaði á klofnum dómi gegn sterkum andstæðingi frá Belgíu.

Patricia sigraði England í fyrstu umferð, Kanada í undanúrslitum og Spán í úrslitum 🥇




 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page