top of page

Hvítur á leik haldið í mars

  • gumminn
  • 6 days ago
  • 2 min read

Glímumótið Hvítur á leik var haldið í VBC laugardaginn 21. mars og var vel mætt á það.

51 karl og 12 konur tóku þátt, þar af 23 blá belti og heil 40 hvít belti. Teknar voru 101 glíma og stóð mótið frá kl. 10 til að verð 17:30.


  • Mjölnir var með 86 stig - 7 gull 🥇, 6 silfur 🥈og 5 brons 🥉

  • VBC var með 19 stig - 2 gull 🥇og 1 brons 🥉

  • Sleipnir með 17 stig - 1 gull 🥇, 2 silfur 🥈 og 2 brons 🥉


Svo voru 2 Superfights:

Superfightin voru þannig að þetta voru 8 mín. lotur og keppt var eftir brúnt og svarbeltis reglum.

Fyrsti superfightinn var Ari Auðun Jónson frá RVK MMA 88 kg. blátt belti á móti Eggert Axelssyni sem að er brúnt belti frá Mjölni. Þessi glíma fór þannig að þeir náðu hvorugir uppgjafartaki en fóru allar 8 mínúturnar, mjög spennandi glíma

Næsta superfight var á mill Úlfars Kára og Viktors Gunnars. Úlfar Kári er 16 ára blátt belti frá VBC og það þarf ekkert að kynna Viktor hann er mikill bardagamaður frá Mjölni og hefur verið að stíga upp í bardagaheiminum. Þessi glíma var virkilega góð í alla staði en Viktor náði Úlfari í Darce choke eftir góða baráttu.


Mjög mikið af efnilegu og góðu glímufólki var á þessu móti og mjög gaman að sjá hversu margir kepptu og komu að horfa á. Húsið var nánast fullt allan tímann meðan keppnin var og fór þetta mót fram úr öllum væntingum mótshaldara.


Glímufélag Kópavogs og VBC vill svo þakka öllum sem að komu að aðstoða við þetta mót og alla þá sem að lögðu sitt af mörkum bæði þjálfarar, keppendur og áhorfendur.


Sérstakar þakkir fá Ari Auðuns, Eggert Axelsson, Viktor Gunnars og Úlfar Kári


Greinarhöfundur: Þröstur Njálson



 
 
 

Comments


VBC Bardagaíþróttir

Smiðjuvegi 28, 200 Kópavogi

4169001

vbc@vbc.is

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page