Pirkka Tournament - Finnlandi
- gumminn
- May 15
- 1 min read
Fimm keppendur frá HFK tóku þátt í Pirkka Tournament í Finnlandi, helgina 9. - 10. maí. Hópurinn sem keppti frá Íslandi er hluti af hæfileikamótun Hnefaleikasambands Íslands en mótið er eingöngu fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára.
Alls tóku þátt 11 keppendur frá Íslandi.
Fajer Ghazali U15 48 kg keppti sinn þriðja bardaga á móti reyndum boxara úr Finnska landsliðinu með 46 bardaga. Fajer stóð vel í bardaganum en vantaði aðeins upp á til að ná sigrinum. Niðurstaða brons 🥉
Arnar Jaki Smárason U19 fór beint í úrslit í -65kg á móti reyndum Finna. Arnar átti mjög góða frammistöðu og var bardaginn hníf jafn á stigum í loka lotunni en á endanum var niðurstaðan 2-1 split decision fyrir heimamanninum. Niðurstaða silfur 🥈
Yahya Ghazali U19 fór einnig beint í úrslit á móti öflugum Finna og átti Yahya mjög solid frammistöðu en það dugði ekki til að tryggja sér gullið í þetta skiptið. Niðurstaða silfur 🥈
Viktor Örn Sigurðsson U19 -80 kg tapaði á móti Finnlandi í skemmtilegum bardaga sem var mjög jafn. Viktor setti pressuna á Finnann allan tímann og átti flotta frammistöðu. Niðurstaða brons 🥉
Kormákur Steinn Jónsson U19 -70 kg fór einnig á móti Finnlandi og átti flotta frammistöðu í mjög jöfnum bardaga en dugði ekki til að sannfæra dómarana. Niðurstaða brons 🥉
Hópurinn stóð sig mjög vel, vantaði herslumuninn hjá þeim að sigla þessu heim, þvílíkar bætingar hjá öllum á tímabilinu. Strákarnir fengu allir mjög góða andstæðinga, góð reynsla og fullt sem við tökum frá þessu sem við förum beint í að vinna í.












Comments